|
|
01.08.2007 22:21:27 / Boozer
Annað kvöld er ég að fara í herjólf og dugga til eyja... vildi líka
bara láta vita af mér........
»
27.05.2007 14:40:36 / Boozer
Jæja, er ekki kominn tími til að skrifa! Ég held
það!
En já, nú er Magadansfestivalið búið svo að nú taka aðrir hlutir
við.... líklega bara fallhlífastökk! Mig vantar reyndar að vita
hvert maður á að leita til að fara í fallhlífastökk, hugmyndin er
bara svona farðþegastökk þar sem maður hagnir í reyndum
stökkvara... vil fyrst stökkva þannig áður en maður ákveður að fara
á heilt námskeið til að fá að stökkva sjálfur sem kostar fullt af
peningum.... Væri að vísu vís með að drífa mig á svoleiðis námskeið
eftir stökk.... en verð að gera þetta í sumar og ekkert annað kemur
til greina!
En eigum við ekki að tala pínulítið saman um Magadansfestivalið?
Hnvernig væri það! Þetta var sko snilldar ferð og ég er svo á
leiðinni aftur á næsta ári! Ég taldi mig hafa áhuga á magadans en
eftir þetta.... ég þarf að verða að magadans sko!!!
Maður var þarna dansandi alla dagana á fullu, og þegar maður var
búin í tíma kl. hálf 7, notaði maður smá tíma til að teyja á og svo
var bara hlaupið niður í bát (hótelið) til að fara í örsnögga
sturtu, klæða sig og setja pinu framan í sig áður en maður hljóp
aftur upp í skóla til að vera sem framarlegast í röðinni inn í
sýningarsalinn til að fá góð sæti. Þar var maður langt fram eftir
kvöldi og naut sýninganna í botn... fyrir utan þreytuna sem sótti á
mann, sérstklega fyrsta kvöldið... Þannig að þessi ferð var ekki
mikil svefnferð heldur tók á allt sem maður hafði. Maður var alltaf
á hlaupum og hreinlega á fullu!! En mikið ofboðslega var þetta
gaman og eins og ég sagði, ég verð að fara aftur á næsta ári!
En þá er það spurningin sem sumir eru að bíða eftir... Keypti ég
mér magadansbúning þarna úti?? (trommusláttur)
Svona leit skoðunakönnunin út á endanum
Jæja, þá kemur sannleikurinn í ljós.... Ég keypti mér EKKI
búning!
Þannig að 88% þeirra sem svaraði skoðanakönnunninni höfðu rangt
fyrir sér! Ég keypti mér hins vegar nýtt belti til að dansa með,
með fullt fullt af kling kling klingi þannig að það heyrist vel í
mér Það er svart með silfurpeningum, mjög flott, svo keypti ég
mér tvenna skó til að dansa í, hálsmen, eina eyralokka og svo gaf
Sandra vinkona mér armband þannig að ég missti mig nú ekkert....
Sem ýtur undir að þessi 88% höfðu rangt fyrir sér 
En ég skal viðurkenna að ég skoðaði búninga þarna, en brjóstin á
mér eru bara af stór fyrir svona bazar Hefði aldrei komið þeim í
toppana! Sá reyndar enn gulan helv. flottan, væri alveg til í gulan
búning.. held að það gæti verið skemmtilega öðruvísi En ég skal
samt viðurkenna eitt... ef ég hefði fundið búning sem mér hefði
litist á og hefði passað þá er aldrei að vita nema að ég hefði bara
hreinlega splæast honum á mig.... Og þó... ég er alltaf að hugsa um
að grennast svo mikið ef eða sko meira þegar það gerist þá myndi
þessi ekki passa svo mikið..... en aldrei að vita hvað framtíðin
ber í skauti sér 
Skiljum þetta eftir í loftinu þar til seinna
»
07.05.2007 23:18:27 / Boozer
Já, það eru bara 9 dagar í það að ég verði úti í Svíþjóð, meira
að segja tæpir! Þar verður maður að dansa frá 2 1/2 til 5 tíma á
dag! Eins gott að maður verði duglegur að hreyfa sig þar til þá til
að vera í ágætis formi...
Talandi um það, fyrsta línuskautaferð sumarsins var farin í gær,
massa ferð, en ég er greinilega betur á mig komin ein seinustu
sumur því þessi ferð var ekki eins erfið og hinar fyrstu ferðirnar
svo ég er ansi sátt! Við fórum úr Nauthólsvík og út Ægisíðuna með
vindinn í bakið, svo var komið að því að snúa við.... holí mólí
hvað það tók samt á. Það var nefninlega ágætis vindur á móti og svo
fór ég að finna einn og einn dropa, svo rigndi svolítið, þó ekki
þannig að maður hafi haft áhyggjur af legunum í skautunum en það
versnaði þó þegar hagglið byrjaði! Sem betur fer stóð það stutt
yfir og við Guðjón komumst á leiðarenda, móð að venju en ég var
ekki eins sprungin og ég hef oft verið eftir þessa ferð snemma að
sumri! Jibbí, "I'm making progress" 
Hins vegar kom hrakfallabálkurinn fram í mér á fimmtudaginn...
Já, ég þarf enn að passa mig, ég er enn innan marka af 6 ára
bölvuninni.... Ég er enn 24! Ég sem sagt er í vinnunni, við erum
undirmannaðar og ágætis traffík... Ég er rétt að klára matinn minn
þegar ég ákveð að mig langar ofboðslega í te.... sem voru mistök.
Suðan var nýkomin upp á katlinum þegar ég helti því yfir í bollan
með tepokanum, ég labbaði inn í búð og sveigði framhjá nokkrum
knúnum sem urðu á vegi fyrir mér, svo kem ég á kassan og legg
bollan frá mér, eða ég hélt það amk..... en bollinn stökk svoleiðs
á mig að allt teið úr honum fór yfir mig alla! Það fór á peysuna
mína, bolinn minn, buxurnar og sokk... Mér bregður ekkert smá!
Stekk undan en þegar ég finn fyrir hitanum á maganum á mér halla ég
mér strax fram svo ég geti dregið bolinn frá maganum á mér en finn
þá svakalegan sviða á tánum á mér svo ég byrja að fara úr
sandalanum en finn þá hvað hendin á mér er að brenna, tek ermina
aðeins af hendinni en finn að ég verð að fara úr sokknum því tærnar
á mér kvörtuðu meira en hendin á mér á þeirri stundu... Ég hendi
sokknum af mér og lít svo upp... o ó... ég er inni í miðri búð og
nokkrir að horfa skelfingu losnir á mig.... Ég gleymdi hendinni,
set fótinn í skóinn, tek upp sokkinn og bollan og þýt inn á lager!
Þegar þangað er komið er hendin á mér logandi svo ég ríf peysuna af
mér og þá er ég orðin ansi rauð og þrútin á svona rétt fyrir ofan
úlnliðinn, fyrir utan rosalega brunatilfinningu! Hólí mólí hvað
þetta var ógeðslega vont! Ég fer undir kranan, stend þar ansi lengi
að kæla og svo fæ ég krem úr búðinni, Móa kremið, og ber svoleiðis
ofboðslega þykkt lag yfir brunan sem leit alls ekki vel út þar sem
útlit var fyrir að blaðra væri byrjuð að myndast... Svo skiptist ég
á að fara undir vatn og bera á í svolítinn tíma og fór að verða
skíthrædd um að missa af tímanum hjá Háls- nef- og eyrnalækninum
vegna biðar á slysó! En allt fór þetta nokkuð vel að lokum... Nína
Spínatdós pakkaði þessu aðeins inn svo ég gat unnið pínulítið og
svo eftir smá tíma hætti sviðinn og áhyggjurnar af slysóbiðstofu
urðu minni. Svo ég komst til doksans til að vera greind með
ofnæmisnef (eins og örugglega hálft ísland) en hins vegar ekkert að
eyrunum né heyrninni, ég heyri ,,eiginlega bara of vel" samkvæmt
doksa... Svo ég þarf víst bara að ,,læra að heyra það sem ég vil
heyra"... já, ég þarf bara að hætta að vera svona utanvið mig og
byrja að hlusta Smá einbeiting bara hmm...
Svo núna er staðan þannig að ég er að spreyja upp í nefið á mér
2 tegundum af nefspreyum, 2x á dag, ójbara. Og er farin að geta
skrifað á tölvuna því bruninn er orðin skárri. Engin blaðra kom út
svo ég brást greinilega rétt við Móa kremið er alveg að virka,
mæli með því. Nú er ég bara með smá rauðan aumann blett og svo smá
harðsperrur eftir línuskautana. Þannig að lífið er bara orðið ágætt
aftur 
B.t.w. komin með myspace... haha nú er ég maður með
mönnum
»
23.04.2007 16:49:28 / Boozer
Ég veit ekki hvort ég var nú búin að tjá mig eitthvað hérna um
skólann og að ég var of sein að sækja um... ég auli en það var bara
svo mikið um að vera að ég bara steingleymdi þessu! Þegar ég
hringdi í nemendaskrá gátu þær ekkert fyrir mig gert nema að gefa
mér upp e-mail hjá manni sem tæki ákvörðun um hvort maður kæmist
inn í skólann eða ekki.... og já, ef maður tekur sér frí frá námi,
þá þarf maður að biðja um leyfi, þó að námið þitt sé ekki kennt
þetta tiltekna ár! Fáránlegt, já.
Ég sendi þessum manni e-mail, fékk ekkert svar lengi vel svo mín
ákveður að minna bara á sig og sendi annað e-mail á hann á
föstudaginn og vitið mitt, ég fékk mail áðan þar sem ég var
vinsamlegast beðin um að senda nafn og númer á námskeiðunum sem ég
ætla að taka á næsta skólaári og ég myndi fá greiðsluseðil sendan á
lögheimilið mitt í júní.
Mikið ofboðselga var ég glöð, ég nánast hoppaði upp úr sófanum
af gleði! Þannig að ég sendi svar til baka c.a. 10 mín eftir að
pósturinn var sendur til mín, svona getur maður verið fljótur að
þessu! Ég er svo fegin því mig langar svo að halda áfram í
táknmálinu. En o ó... núna er ég farin að kvíða geðveikt fyrir...
nú verður maður eins og auli þegar maður mætir í færni... ég er
búin að gleyma öllu táknmáli! Sjitt! Og stelpurnar sem eru núna á
1. ári verða geðveikt sleipar og ég ekki skilja jæja, þetta
reddast allt
Ég er að fara aftur í Táknmálsfræði í HÍ!!! Jibbí!!!
Já, svona er ég dansandi glöð, já, núna væri akkúrat tilefni til
þess að taka nokkur magadansspor í gleðinni!
B.t.w. ég er að fara til svíþjóðar eftir 3 vikur og 2 daga!
Maður bara varla trúir því!
»
20.04.2007 13:16:26 / Boozer
Nú verð ég að segja að ég er búin að vera nógu mikið veik í
vetur, nú er ég hætt þessu og skal bara hafa góða heilsu framundan
því núna er líka komið sumar (eða svona að nafinu til, maður er
bara með sól í hjarta og söng á vörum) og þá þýðir ekki að eyða
tíma í einhverjar flensur og aðrar pestir, nú segi ég hingað og
ekki lengra! Nú skal hausinn komast í lag og kvefið skal halda á
brott og við tökum á móti sumrinu hress og kát, þó það sé snjókoma
út 
Það styttist óðum í Svíþjóðarferðina miklu og þá þarf ég sko að
vera komin með hesta heilsu því ég verð dansandi þar frá 2 og
hálfum tímum upp í 5 tíma á dag! Þá þarf maður að hafa allt í lagi
hjá sér!
En þá er matarhléið mitt að klárast og ég þarf að fara að
bóka fleiri nótur og svara í þennan síma sem er búin að vera
síhringjandi síðan ég fór í mat og nei, ég svara ekki símanum þegar
ég er í mat, hver myndi gera það? Nína er meira að segja hætt því,
húrra! 
Minni annars bara á nýju skoðanakönnunina.... skilst að það sé
eitthvað lélegt veðmál í gangi um hvort ég muni kaupa mér
magadansbúning úti í Svíþjóð eða ekki..... svo best að leyfa öllum
að vera með í því veðmáli 
Gleðilegt sumar!!! Með sól í hjarta!
»
15.04.2007 11:29:34 / Boozer
Góðan dag!
Ég verð nú að segja að ég er ansi stolt af litlu mér. Tja, litlu
og ekki litlu.... skiptir ekki. Á föstudaginn var ég sem sagt að
sýna á sýningunni, auglýstri hér í fyrri færslum, og ég verð bara
að segja að ég stóð mig með prýði, þó ég segi sjálf frá!
Ég sýndi tvo dansa. Trommusóló, að vísu var þetta ekki sóló þar
sem ég dansaði ein, þá hefði ég náttúrulega dáið í orðsins fyllstu
merkingu! Við vorum 5 saman að dansa þann dans og þetta gekk eins
og í sögu. Fyrir utan eitt: Að muna eftir að brosa!
Trommusólóið var númer 2 í röðinni þannig að á meðan
byrjendurnir voru að dansa hríðskalf ég baksviðs og hélt að síðasti
andardráttur minn væri akkúrat þarna en nei, ég lifði og gekk út á
sviðið, allt í lagi til að byrja með svo fór ég aftur að skjálfa.
Hendurnar skulfu meðan ég reyndi að hreyfa þær eins og dansinn
sagði til og þegar ég var að reyna að gera shimmy uppi á tám varð
hann svolítið misheppnaður þar sem ég skalf svo mikið fyrir að það
var efitt að halda honum eins og hann átti að vera en allt
reddaðist þetta og ég fór baksviðs þar sem ég svitnaði og svitnaði
og titraði og titraði og enn og eftur, hélt að það væri komið að
síðasta andardrætti mínum. Svo hins vegar jafnaði ég mig. Fór að
anda eðlilega, hætti að svitna, hætti að titra.
Þá fattaði ég, "Hey! Ég er að fara að sýna aftur!" Og gettu bara
hvað, "Yes! Nú hlakka ég til" og í þetta skiptið titraði ég ekki og
gat andað eðlilega og söng meira að segja með laginu (um mömmu hans
Ahmed) og ég er ekki frá því að mér hafi tekist að brosa amk
eitthvað smá.... Við vorum að vísu ekki allar samtaka í laginu en
Maher gaf mér amk tvo þumla og klappaði mér á bakið og allt, þannig
að ég hlýt að hafa staðið mig ágætlega 
Oh, þetta var svo gaman! Ég þarf svo að gera þetta aftur!!
En ég verð bara að segja ykkur aðeins frá Maher, hann er frábær
kennari! Mörgum finnst geðveikt fyndið að það sé karl að kenna
magadans en hann er actually really good! Manni fannst þetta
geðveikt skrítið fyrstu tímana sem hann kenndi en svo varð þetta
bara alveg eðlilegt og ofboðslega gaman. Hann lætur mann svitna
fyrir alvöru, maður gersamlega púlar hjá honum og ég fíla það!
Hlakka til að hann komi aftur. Maður hittir hann vonandi amk
eitthvað aðeins í Svíþjóð.
En yfir í annað
Svenni litli bróðir var að spila í Söngvakeppni framhaldsskólana
og stóð sig með príði, hann var geggjaður töffari þessi litli brói
minn. Svaka stolt af honum!
Svo á Hörður stóri bróðir afmæli á morgun, svo til hamingju með
ammælið Stóri!
Mamma er hins vegar á leiðinni í bæinn og ég var búin að lofa að
fara með henni á flakk svo það er best að fara að klæða sig og vera
tilbúin þegar þau koma, ætla ekki að láta nappa mig á
náttfötunum.
B.t.w. ef þið viljið sjá myndir af magadanssýningunni þá eru
myndir á myndasíðunni hans Guðjóns, þeirri nýju..... Þar eru margir
flottir kroppar og svo fitlubollan ég.
»
10.04.2007 18:13:36 / Boozer

og ég 
Þá vita það allir sem vilja vita af magadanssýningunni, minni
fyrstu Svolítill fiðringur í mallakútnum...
Ég fékk meira að segja geggjað flottan búning lánaðan og allt og
sjitt, of stuttu í þetta!
»
29.03.2007 18:39:43 / Boozer
Já, sýningin var nær mér í tíma en ég hélt, það verður fyrr
komið að því að ég stígi á svið og dansi magadans en mér óraði
fyrir! Og já, það er ekki lengur neitt kannski, það verður. Ég veit
ekki hvort ég eigi nokkuð að vera að segja ykkur hvar og hvenær
sýningin verður... kemur ykkur bara ekkert við 
Annað og meira er af mér að frétta! Ég var nefninlega að bóka
ferð til Svíþjóðar! Ég er sem sagt að fara á svona magadans
festival í maí! Þar verða 4 dagar af stanslausum dansi og sýningum
og ég hlakka ekkert smá til! Ég frétti af þessu á þriðjudaginn og
óraði ekki fyrir því að ég myndi í alvöru fara! Í fyrsta lagi þá
þurfti ég að fá frí í vinnunni þar sem þetta er næstum því vika sem
fer í þetta! Svo komst ég strax að því að Sandra vinkona og hetja
kemst ekki því hún er að fara til Frakklands á sama tíma. Þannig að
strax c.a. 2 tímum eftir að ég frétti af þessu hrundu hélt ég að
draumurinn um að fara með væri hruninn þar sem ég bjóst alveg eins
við því að fá ekki frí í vinnu og þekkti hvort eð er engan sem
færi. En ég var samt kvött til að koma því það þekktust ekkert
allar og með þessu gætum við kynnst betur og jarrí jarrí jei. En ég
fór að sofa á þriðjudaginn alveg ákveðin að ég færi sko ekki
neitt
Svo vaknaði ég í gærmorgun og hugsaði bara hvað það yrði
geðveikt gaman að fara. Ógeðslega óraunhæft en það væri amk gaman.
Og svo fór ég að hugsa, hvað með það þó ég þekki ekki neinn, en þá
verð ég ein í herbergi og ein að rolast, en ég verð bara að redda
mér, mig langar! og svo bara ákvað ég að láta það ráðast á
vinnunni, hvort ég fengi já eða nei við fríi. Svo bara fékk ég eitt
stór JÁ! Svo ég bókaði bara flug í matnum mínum í dag og það er ein
úr hópnum mínum (sem ég hafði samband við því ég hef spjallað
nokkrum sinnum við hana) að tékka hvort hún geti ekki breytt
herbergjapöntuninni sinni þannig að við getum verið 3 saman í
herbergi Þannig að ég verð pottþétt ekkert alveg ein og ég mun
læra ofboðslega mikið og þetta verður brjálað gaman!! Sýning hvað!

Annars er ég að hugsa um að halda bara áfram að dansa og leika
mér.
Mallahristarinn kveður í bili 
»
27.03.2007 18:11:58 / Boozer
Ég veit að ég er að fara á tónleika annaðkvöld
(miðvikudagskvöld), ég ætla að fara á Ljóslifandi tónleika í
Grensáskirkju. Tónleikarnir byrja kl. 20, viltu koma með mér?
Ég er líka að hugsa um að fara á Ljóslifandi tónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík á fimmtudagskvöldið, ef ég þarf ekki að
vinna.
Annars er lítið annað búið að vera að gerast hjá mér en að vinna
og svona, nóg að gera hérnamegin. Svo er magadans í kvöld, við erum
að læra dans við trommusóló og hann er geggjað flottur, vona að við
náum að klára hann í kvöld. Þetta er síðasti tíminn svo það er eins
gott að við komumst sem lengst, gallinn er bara að það er 1 og hálf
mínúta eftir af laginu! Svolítið langt til þess að geta klárað hann
í kvöld og getað munað hann eftir það... En þetta kemur allt í ljós
í kvöld 
En ég sé ykkur vonandi annaðkvöld og ef ekki þá vona ég að þið
séuð á Ljóslifandi tónleikum á Nasa! Nóg í boði 
»
23.03.2007 01:17:16 / Boozer
Sandra vinkona og vinir hennar eru búin og eru enn að leggja
þvílíka vinnu á sig til þess að helda styrktartónleika til styrktar
Ljósins og til minningu vinkonu þeirra sem dó úr krabbameini.
Get ekki sagt annað en að ég hefði viljað þekkja vinkonu þeirra
því af sögunum að dæma var hún ansi mögnuð og miða við hvað við
virðumst hafa átt sameiginlegt þá hefðum við örugglega náð ágætlega
saman en því miður gafst mér ekki tækifæri á að kynnast henni en í
staðinn get ég styrkt ljósið með því að mæta á tónleika og láta
ykkur öll vita af þeim.
Endilega látið alla sem þið þekkið vita og komið með og styrkjið
gott málefni! Ég veit að ég hlakka til!
»
14.03.2007 19:14:26 / Boozer
Ég fékk lagið við dansinn sem ég er kannski að fara að sína
einhvertíman bráðum (um mömmu Ahmed) og ég er bara að rúlla því
nokkuð vel upp. Í gær var tími í magadans og kennarinn byrjaði að
spila það til að sjá hvað við mundum úr því, ég eiginlega mundi
mest.... Kom samt inn í mitt lag og ruglaði því aðeins saman... En
svo er ég búin að vera að dansa það aðeins í dag og þetta er bara
eiginlega alveg komið Maður á það til að ruglst en þetta fer
alveg að rúlla hjá mér án þess að hugsa of mikið um hvað ég er að
gera Gaman gaman! Kannski maður bara rúlli þessu upp í næsta
tíma ef hún setur þetta á fóninn aftur 
Annars var ég að koma úr mjög svo blautri sumarbústaðarferð,
blautri í vatni og víni en mjög góð var þessi helgi. Það var bara
alveg mjög gaman. Við bara drukkum, spiluðum, borðuðum, spiluðum
singstar og buzz og drukkum meira í pottinum þannig að þetta var
bara hin aldeilis fína sumarbústaðarferð Nema hvað að ég kom
heim úr henni með í maganum... Og er ekki enn alveg orðin nógu góð
en þetta hlýtur allt að koma, þarf bara að fara að borða
almennilega góða og holla máltíð og þá held ég að því sé
reddað.
Nú er hins vegar málið að ákveða hvenær maður eigi að fara í
sumarfrí og hvort farið verði til Finnlands eða ekki. Spurningin er
svo sem ekki hvort við förum til Finnlands, bara meira hvenær. Það
er verið að reyna að draga okkur út um jónsmessuna að venju en eini
gallinn er að þá verður Kirsi komin 8 mánuði á leið og seinast
(þegar hún gekk með Simo guðson okkar) kom barnið mánuði á undan
tíma svo þetta er kannski ekki besti tíminn eða hvað? Þetta er að
minnsta kosti brúðkaupssumarið mikla. Og annað þeirra er fyrir
norðan svo maður þarf að redda sér gistingu þar! Einhverjar
hugmyndir?
En jæja, best að reyna að búa til einhverja máltíð til að gefa
mallakútnum mínum... reyna að hressa hann aðeins við. En það er
ekkert sem smá magadans getur ekki hresst við 
Ps. það er skoðanakönnun í gangi sko....
»
24.02.2007 10:48:59 / Boozer
Góðan og blessaðan daginn
Í gær fór ég í magadanstíma og skemmti mér konunglega eins og
alltaf, þetta er erfitt en geðveikt skemmtilegt! Þá komumst við að
því að það er sýning í lok apríl og nú lítur út fyrir það að mín sé
bara að fara að sýna!
Eftir fyrsta námskeiðið okkar hefði ég getað sýnt dansinn sem
við lærðum það en ég ætlaði mér aldrei að taka þátt í neinni svona
sýningu, hins vegar núna þegar ég er að klára mitt 3 námskeið þá
langar mig geggjað að sýna, það er svo gaman að dansa og ég held
hreinlega að með mikilli æfingu að ég geti orðið nokkuð góð þarna
uppi á sviði!
Já ég veit, það vantar ekki sjálfstraustið hér.... eða sko, það
lítur þannig út en eins og þið vitið þá er það æfingin sem gerir
meistarann! Mig langar að verða meistari 
Jói kom yfir í gær og strákarnir elduðu ágætis hakk og spaghetti
rétt nema hvað að þá var þegar ákveðið að hittast aftur í kvöld til
þess að elda eitthvað annað og meira. Hugmyndin hjá þeim er að
byrja meðan ég er í magadansinum í dag... sem sagt milli 3 og hálf
5. Það var svo sem sama plan hjá þeim í gær, að byrja að elda meðan
ég væri í magadansi og ég var til klukkan 8 að dilla mér, kom heim
rúmlega 8 en engir strákar í íbúðinni minni... Það var nú
vonbrigði. Svo við enduðum á því að borða á Guðjónískum tíma,
rúmlega 10!
Sandra vinkona og magadansmær kíkti í heimsókn og fékk að borða
og svo dönsuðum við magadans fyrir þá við mikla aðdáðun Neinei,
þeir þorðu ekkert að segja, þorðu varla að horfa þessar elskur
En Guðjón viðurkenndi nú fyrir mér í morgun að þetta var bara ansi
flott hjá okkur 
Þar með kveður magadansmærin sem getur ekki beðið eftir næsta
tíma og næsta námskeiði!! 
»
21.02.2007 20:31:27 / Boozer
Hef að vísu ekki mikinn tíma núna. Er að bíða eftir að verða sótt í
magadans, og já, ég er komin í magadansinn aftur, alveg á fullu og
ekkert á leiðinni að hætta aftur, þetta er svo geggjað gaman!
Erfitt en ógeðslega gaman. Þessi bloggfærsla er hins vegar
tileinkuð henni Maríu í vinnunni, hún féll slóðina á síðuna mína í
dag og ég lofaði að koma inn nýrri færslu. Ég er reyndar komin í
meira en magadans, ég er líka komin með dýnu og örlítinn dótakassa
hérna heima sem inniheldur sippuband og sitthvort kílóa líðið...
amk byrjun. Svo er ég búin að láta taka mynd af mér í bikiníinu
mínu svo nú er farið í hart  Nett sjokk en ágætis áminning, ég
ætla að líta betur út í bikiníi næsta sumar en ég gerði seinasta
sumar! Takk fyrir mig, meira seinna
»
10.12.2006 13:32:39 / Boozer
svona surprise partý fyrir mig!!! Mér hefði aldrei dottið það í hug
en þvílíkt hvað það var gaman! Takk fyrir mig stelpur!! Þetta var
frábært. Það var búið að baka köku og setja heil 24 kerti á hana
sem loguðu þegar ég kom inn og ég fékk að blása á þau öll (eins og
í alvöru ammælum, sem þetta var!!) Svo voru þær með bollu og gáfu
mér eyrnalokka og hjartalagað hálsmen! Geðveikt flott. Ég á eftir
að lifa lengi á þessu!! Takk aftur fyrir mig!
»
09.12.2006 21:38:04 / Boozer
Og til teirra vil ég beina orðum mínum, ,,til hamingju með
afmælið"! Ef blogcentral væri ekki svona leiðinlegt og öfugsnúið
núna og myndi birta teljarann minn sem ég setti enn þá myndi sjást
það það eru akkúrat 365 dagar þar til ég verð 25. Skemmtilegt. Nú
er bara ár í að ég ætla að vera búin að svo svaka svaka miklu! Ég
var reyndar að vinna í dag en gleymdi að kaupa nammið mitt svo ég
skrapp upp í kringlu og o m g hvað knúsin mín voru obboslega
rosalega góð! Takk stelpur! En jæja, nú er ammælismaturinn minn að
verða til, og já kl hálf 10! Við vorum bæði að vinna og komum heim
of seint! Of mikið um að vera!! nammi nammi en aumingja maginn minn
á morgun!
»
Síður: 1 2 3 4
|
|